Farið var yfir 11 ára afmælið og hvað gekk vel og hvað mátti bæta. Allir voru sammála um að custom-bílakeppnin hafi verið góð hugmynd og eigi að koma aftur síðar.
Rætt var um hugmyndir að næsta viðburði. Kristján lagði til naval warfare þema. Fúsi vildi eins og venjulega koma Oppressor inn í myndina. Engin lokaákvörðun var tekin.
Kristján greindi frá því að félagið væri að skoða nýjan lendingarstað á Del Perro Pier. Fúsi staðfesti að öryggischeck hefði farið fram. Fundurinn taldi það grunsamlegt.
Kosið var um hvort meðlimur skyldi rekinn úr Icebrothes. Hver meðlimur hafði eitt atkvæði eða gat sagt pass. Allir sem fengu atkvæði á sig eru skráðir hér fyrir neðan. Meira en 3 atkvæði hefðu þýtt rekstur.
| Meðlimur | Ástæða | Atkvæði |
|---|---|---|
| Fúsi "Hagrid" | Reyndi að koma Oppressor inn í knives-only samhengi aftur. | 2 / 7 |